Jæja þá er mín
enn og aftur ein og yfirgefin... Kallinn farinn á sjóinn og
kemur ekki fyrr en eftir um 3 vikur.
Lítið búið að gerast
hér. Fór í göngutúr með börn og hund í dag. Ferlega
gaman hjá okkur. Ekkert hefur gengið hjá mér að safna fyrir
páskabingó og er ég alveg ógeðslega fúl að allir segja nei við mig
En það er svona bara.
Var í göngu áðan eins og ég
sagði, og þar mæti ég konu sem ég kann ágæt deili á og það var
ekkert smá snúður sem mann fékk... uppábrotinn nebbi og
allesammen bara. Ef fólk hefur eitthvað út á mig að setja,
eða er óánægt með mig eða mín störf hér á bæ þá bið ég
vinsamlegast FÓLK um að segja það við mig!!!!! Það
eina og þá meina ég ÞAÐ EINA sem ég þoli ekki
er fólk sem getur ekki komið rétt fram... Takið það
til ykkar sem eigið það 
Jæja loksins fann ég snúruna
af myndavélinni
ástin mín var búinn að koma henni fyrir á
góðum stað áður en hann fór á sjóinn
Og nú fer ég að setja
nýjar myndir hjá englunum mínum 
kveðja Ellen
krúsimús